Sjálfstæðisfélag Álftaness

02. maí 2012

Morgunfundur - laugardagskaffi

Morgunfundur
Morgunfundur verður haldinn í Haukshúsum
laugardaginn 5. maí. Kl. 10:00 – 12:00
Fundarefni:
Ársreikningar Sveitarfélagsins Álftaness 2011.
Sameiningar mál.
Morgunfundur
Morgunfundur verður haldinn í Haukshúsum
laugardaginn 5. maí. Kl. 10:00 – 12:00
Fundarefni:
  • Ársreikningar Sveitarfélagsins Álftaness 2011.
  • Sameiningar mál.
28. apríl 2012

Álftanes á réttri leið

- jákvæð rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði 240 milljónir

„Nú hefur ársreikningur Sveitarfélagsins Álftaness fyrir árið 2011 verð lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Enn á ný er ársreikningurinn jákvæð staðfesting á því starfi sem unnið hefur verið í fjármálum sveitarfélagsins á kjörtímabilinu. Náin samvinna hefur verið meðal starfsmanna, fjárhaldsstjórnar og bæjarstjórnar á árinu og hefur tekist að viðhalda og staðfesta viðsnúning fyrra árs  í rekstri, þrátt fyrir að markmið fjárhagslegrar endurskipulagningar gæti ekki í reikningnum nema að litlu leyti. Kemur þetta meðal annars fram í því að rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði er jákvæð um 240 milljónir.

09. apríl 2012

Álftanes úr vörn í sókn

Álftanes féll úr efstu sætum úrvalsdeildar sveitarfélaga á síðasta kjörtíambili niður í það neðsta. Sumir sögðu Álftanes búið að vera. Sveitarfélagið hafði á mettíma verið skuldsett fyrir ríflega 500% af árstekjum þess sem einar og sér stóðu ekki lengur undir venjubundnum rekstrarútgjöldum. Íbúarnir gerðu miklar breytingar á liðinu í síðustu sveitarstjórnakosningum. Liðinu og þjálfaranum var öllum skipt út.

 

30. mars 2012

Álftanesvegur á Samgönguáætlun

Nú er í vinnslu hjá samgöngunefnd Alþingis samgönguáætlun fyrir árin 2011-2014 sem ríkisstjórnin lagði fram í byrjun ársins. Í áætluninni er gert ráð fyrir að framkvæmdir við nýjan Álftanesveg hefjist á þessu ári.

01. mars 2012

Laugardagskaffi í Haukshúsum

Laugardagskaffi Sjálfstæðisfélags Álftaness verður haldið í Haukshúsum laugardaginn 3. mars frá kl. 10:00 - 12:00. Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs Fjarðarbyggðar sem er í framboði til annars formanns Sjálfstæðisflokksins mætir.
Rjúkandi kaffi og góðar veitingar á borðum.

Stjórnin.

14. febrúar 2012

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Álftaness

Aðalfundur verður haldinn í Haukshúsum, þriðjudaginn 14. febrúar. Kl. 20.00.

Fundarefni: 
Venjubundin aðalfundarstörf. 
Önnur mál.

Húsið opnar kl. 19.45. 
Allir félagsmenn hvattir til að mæta.

Stjórn Sjálfstæðisfélags Álftaness

03. febrúar 2012

Laugardagskaffi í Haukshúsum

Laugardagskaffi Sjálfstæðisfélags Álftaness verður haldið í Haukshúsum laugardaginn 4. febrúar frá kl. 10:00 - 12:00. Jón Gunnarsson alþingismaður mætir.

Stjórnin

30. desember 2011

Betri tímar framundan

Ágætu Álftnesingar

Nú er liðið eitt og hálft ár frá því að við bæjarfulltrúar Sjálfstæðisfélagsins vorum kjörnir af ykkur til að hafa forystu um stjórn sveitarfélagsins. Við höfum lagt á það kapp á árinu 2011 sem fyrr að vinna ötullega, faglega og af einurð að því að rétta af fjárhag sveitarfélagsins en halda um leið uppi góðri þjónustu við íbúana og vinna þau verk sem þarf til að bæta samfélagið hér á Álftanesi.

Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1
105 Reykjavík
515 1700
xdalftanes@gmail.is

  RSS
Sjálfstæðisfélag Álftaness á Facebook
Ganga í flokkinn
Styrkja flokkinn
www.xd.is